Thursday, October 25, 2007
líf Ásdísar í stórum dráttum
Ásdís er fædd 13. mai 1982. Hún ólst upp sem saklaus sveitastúlla á bænum Kjalvararstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði. Hún gekk í kleppjárnsreykjaskóla. Síðan lá leið hennar í Menntaskólann á Akreyri. Á Akureyri bjó hún á heimavist og tók hún þátt í leikfélaginu og kórnum eignaðist skrítna og skemmtilega vini og naut lífins. Hún útskrifaðis 17. júní 2003 frá MA en hún hafði þá tekið sér eins árs hlé og farið sem skiptinemi til Nýja Sjálands veturinn 2000-2001 þar kynntist hún maorídönsum og kíwífuglum. Því næst lá leið hennar í háskóla Íslands, þar sem hún byrjaði að læra mannfræði en skipti svo yfir í guðfræði og kláraði BA nám með 30 einingar í mannfræði og 60 í guðfræði. Hún útskrifaðist þaðan haustið 2006. Háskólaárin einkenntust mest af lífinu í kringum Háskólakórinn, það var svo sannarlega fjörugur félagskapur þar sem ekki var hægt að láta sér leiðast. Í kórnum rakst hún á ungan og efnilegan píanóleikara og flutti fljótlega inn til hans. Að því loknu vann damann á elliheimili í nokkra mánuði og lét síðan gamlan draum rætast og skellti sér í hússtrjórnunnarskóla Reykjavíkur þar sem hún lærði að baka upp sósur og nota hekklunál. En Ásdís náði ekki alveg að klára hússtrjórnunnarskólann þar sem henni fæddist sonur 10 vikum fyrir tímann 24. apríl 2007. hann er hin mikill víkingur og sannkaður ljósengill
Subscribe to:
Posts (Atom)